Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 05. desember 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tvíburasystur skrifa undir samninga við Keflavík
Mynd: Víkurfréttir
Íris Una og Katla María Þórðardætur eru búnar að skrifa undir nýja tveggja ára samninga við Keflavík.

Íris Una og Katla María eru gríðarlega efnilegar tvíburasystur sem eiga yfir 100 leiki að baki samtals fyrir meistaraflokk Keflavíkur þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára.

Báðar léku þær stórt hlutverk í liði Keflavíkur í sumar er liðið endaði í öðru sæti Inkasso-deildarinnar, með 48 stig úr 18 leikjum.

Báðar eiga þær leiki að baki fyrir U17 og U19 landslið Íslands.

„Leikmennirnir hafa báðir verið í lykilhlutverkum í Keflavíkurliðinu síðustu ár og því eru það frábærar fréttir fyrir klúbbinn að þær hafi ákveðið að framlengja sína samninga," segir á vefsíðu Keflavíkur.
Athugasemdir
banner
banner