Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 07. febrúar 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Joshua King ýtir Man Utd til hliðar - Einbeittur á fallbaráttuna
Mynd: Getty Images
Eddie Howe, stjóri Bournemouth, segir að framherjinn Joshua King sé einbeittur á að hjálpa liðinu í fallbaráttunni sem er framundan og að áhugi Manchester United trufli hann ekki.

Manchester United reyndi að fá King í sínar raðir undir lok félagaskiptagluggans en án árangurs.

„Hann er í mjög góðu lagi. Þetta voru erfiðir dagar fyrir hann en það er mikið hrós fyrir hann og stórt augnablik að Manchester United hafi sýnt honum áhuga," sagði Howe í dag.

„Hann er mjög einbeittur á stöðu okkar í deildinni og hann veit að við erum í fallbaráttu. Það er ekki tími í að einbeita sér að sjálfum sér og hann veit það. Hann er mikill liðsmaður og hann bíður spenntur eftir að verða heill og hjálpa okkur í baráttunni."

Bournemouth mætir Sheffield United á sunnudaginn en King verður ekki með þar vegna meiðsla.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner