Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 07. mars 2020 21:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Holland: AZ og Ajax jöfn á toppnum - Albert á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er mikil spenna í hollensku Eredivisie. Eftir 25 umferðir eru AZ og Ajax jöfn að stigum með 56 stig á toppi deildarinnar.

Feyenoord er níu stigum á eftir toppliðunum en á leik til góða. Bæði AZ og Ajax unnu sigra í dag. AZ lagði Den Haag, 4-0, og Ajax vann 1-3 útisigur á Heerenveen.

Albert Guðmundsson er að snúa til baka eftir erfið meiðsli og var hann á varamannabekknum hjá AZ í dag. Albert lék með varaliði félagsins í vikunni og er allur að koma til.

Teun Koopmeiners skoraði tvö mörk fyrir AZ í dag og Dusan Tadic skoraði tvö og lagði upp eitt fyrir Ajax í kvöld.

Alls eru 34 umferðir í deildinni og eiga AZ og Ajax ekki eftir að mætast aftur. Ajax er með 45 mörk í plús en AZ er með 37 mörk í plús.
Stöðutaflan Holland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 PSV 31 27 3 1 103 17 +86 84
2 Feyenoord 31 23 6 2 80 24 +56 75
3 Twente 31 19 6 6 59 31 +28 63
4 AZ 30 16 7 7 59 35 +24 55
5 Ajax 31 13 10 8 65 58 +7 49
6 NEC 30 12 11 7 59 44 +15 47
7 Utrecht 30 12 9 9 43 41 +2 45
8 Go Ahead Eagles 31 11 9 11 45 42 +3 42
9 Sparta Rotterdam 30 11 7 12 45 43 +2 40
10 Heerenveen 31 10 6 15 50 64 -14 36
11 Fortuna Sittard 30 9 8 13 34 52 -18 35
12 Almere City FC 31 7 12 12 31 51 -20 33
13 Zwolle 30 8 8 14 40 58 -18 32
14 Heracles Almelo 30 9 5 16 40 62 -22 32
15 Excelsior 31 5 11 15 46 66 -20 26
16 RKC 30 6 6 18 29 50 -21 24
17 Volendam 30 4 7 19 30 74 -44 19
18 Vitesse 30 4 5 21 22 68 -46 -1
Athugasemdir
banner
banner
banner