Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. mars 2020 19:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Klopp: Skil ekki hvernig þeir sáu ekki brotið
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var spurður út í fyrsta mark leiksins þegar Bournemouth heimsótti Liverpool í dag.

Sjá einnig:
Bournemouth yfir á Anfield - Klopp brjálaður

„Með fyrstu tilraun þeirra til að senda í gegnum vörnina hjá okkur skora þeir. Það kom eftir augljóst brot," sagði Klopp.

„Ég skil ekki hvernig þetta er hægt. Það eru margir sem skoða þetta og mjög skrítið að svona hlutir gerast," bætti Klopp við.

Klopp fagnaði mikið þegar Mo Salah jafnaði leikinn. Hann fagnaði fyrir framan aðstoðardómara og er talinn möguleiki á því að Klopp verði ákærður fyrir athæfið.
Athugasemdir
banner
banner
banner