Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. júní 2019 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu skemmtilega innkomu Suður-Afríku á HM
Mynd: Getty Images
Skemmtilegt kvennalandsliðlið Suður-Afríku tryggði sér sæti á HM í fyrsta sinn í sögunni.

Suður-Afríka mætti Spáni í fyrsta leik og komst óvænt yfir í fyrri hálfleik. Staðan var 0-1 þar til um miðjan seinni hálfleik þegar Spánverjar fengu tvær umdeildar vítaspyrnur og sneru stöðunni við. Lokatölur 3-1.

Innkoma landsliðs Suður-Afríku fyrir leikinn hefur vakið mikla athygli. Landsliðskonurnar löbbuðu þá inn á leikvanginn syngjandi hástöfum og dansandi.

Þær hafa líklegast æft sig eitthvað fyrir mótið því niðurstaðan var merkilega góð eins og sést í myndbandinu hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner