Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. desember 2018 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo: Ekki hægt að bera mig saman við Cristiano
Mynd: Getty Images
Brasilíska goðsögnin Ronaldo segir að það sé ekki hægt að bera sig við nafna sinn frá Portúgal Cristiano Ronaldo.

Á þeim tíma sem ferill brasilíska sóknarmannsins var að fjara út braust Cristiano fram á sjónarsviðið og gekk til liðs við Manchester United.

Síðan þá hefur Cristiano Ronaldo orðið einn af allra bestu knattspyrnumönnum sögunnar, staða sem brasilíski Ronaldo var á góðri leið með að ná áður en meiðsli settu strik í reikninginn.

„Ég hef alltaf gaman af þessum samanburði en hann er út í hött. Við erum ótrúlega ólíkir leikmenn," sagði Ronaldo við Gazzetta dello Sport.

„Helsti munurinn er aldurinn. Það er níu ára aldursmunur á okkur, við spiluðum á mismunandi tímum í knattspyrnusögunni. Leikurinn hefur aldrei þróast jafn hratt og hann gerir í dag.

„Ég vil ekki segja að minn tími hafi verið erfiðari, en við lentum í mismunandi kringumstæðum með mismunandi félögum. Við lékum mismunandi hlutverk á vellinum.

„Við erum líkastir í því að við þráum alltaf að skora mörk."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner