Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 09. febrúar 2020 15:20
Aksentije Milisic
Zidane: Engin lausn varðandi Bale því það er ekkert vandamál
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, hefur tjáð sig um Gareth Bale, leikmann liðsins, í aðdraganda leiksins gegn Osasuna í dag. Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Bale hjá félaginu en Zidane segir að það sé ekkert vandamál í gangi.

Zidane hefur haldið Bale utan hóps í undanförnum leikjum en Bale er í byrjunarliði Real Madrid sem er að spila gegn Osasuna þessa stundina.

„Við tölum alltaf saman, en ég ætla ekki að segja ykkur um hvað er rætt. Hann hefur ekki verið í hópnum í undanförnum leikjum af því að ég get ekki valið alla leikmenn alltaf í hópinn," sagði Zidane.

„Ég treysti á hann því við vitum hvað hann getur gefið okkur. Það er engin lausn varðandi Bale því það er ekkert vandamál. Það þýðir ekki að það sé vesen með hann af því að ég hef ekki verið að velja hann í hópinn."

Bale komst í fréttirnar í vikunni þegar hann keyrði heim af leiknum gegn Real Sociedad í bikarnum en þá var Real Madrid 1-4 undir. Leikurinn endaði 3-4.
Athugasemdir
banner
banner
banner