Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 23:06
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Álftanes hafði betur í níu marka leik
Mynd: Álftanes
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
SR 3 - 6 Álftanes
0-1 Arian Ari Morina ('45+1)
0-2 Stefán Smári Halldórsson ('53)
1-2 Markús Pálmi Pálmason ('66)
1-3 Hlynur Bjarnason ('68)
1-4 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('75)
2-4 Helgi Rafn Bergþórsson ('76)
2-5 Stephan Bríem ('81)
2-6 Arian Ari Morina ('87)
3-6 Helgi Rafn Bergþórsson ('88)

Skautafélag Reykjavíkur tók á móti Álftanesi í C-deild Lengjubikars karla í kvöld og úr varð skemmtilegur slagur.

Arian Ari Morina skoraði fyrsta mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks til að koma Álftnesingum yfir og tvöfaldaði Stefán Smári Halldórsson forystuna snemma í síðari hálfleik.

Markús Pálmi Pálmason minnkaði svo muninn og varð mikið markaflóð þar sem Álftanes stóð að lokum uppi sem sigurvegari.

Arian Ari var atkvæðamestur í liði Álftnesinga með tvennu og setti Helgi Rafn Bergþórsson tvennu fyrir SR.

Bæði lið eru með 6 stig eftir þessa viðureign. Álftanes er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir en SR er búið að spila þrjá leiki.


Athugasemdir
banner