Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 10. janúar 2021 20:50
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Marine og Tottenham: Devine byrjar ferilinn á áttu
Mynd: Getty Images
Carlos Vinicius var besti leikmaður vallarins er Tottenham skoraði fimm gegn utandeildarliði Marine í FA-bikarnum í dag.

Vinicius setti þrennu í fyrri hálfleik og fær 9 í einkunn hjá Sky Sports. Næstu leikmenn fá 8 fyrir sinn þátt, þeir eru Dele Alli og Lucas Moura. Hinn 16 ára gamli Alfie Devine fær einnig 8 í einkunn en hann kom inn af bekknum í hálfleik og skoraði síðasta mark leiksins.

Enginn í liði Marine þótti standa sig sérstaklega illa þar sem leikmenn liðsins fengu 6 í einkunn nema þrír sem fengu 7.

Viðureign Newport County og Brighton er farin af stað og er hægt að fylgjast með henni á Stöð 2 Sport 3.

Marine: Bailey Passant (6), Solomon-Davies (6), Hughes (6), Miley (6), Joyce (7), Barrigan (6), Raven (6), Hmam (7), Kengni-Kuemo (6), Devine (6), Cummins (6)
Varamenn: Howard (7), Strickland (6), Wignall (6), Shaw (6), Doyle (6)

Tottenham: Hart (6), Doherty (6), Alderweireld (6), Rodon (7), Davies (6), Sissoko (6), White (7), Gedson (7), Dele (8), Lucas (8), Vinicius (9)
Varamenn: Reguilon (6), Tanganga (6), Devine (8), Bale (7), Clarke (7)


Athugasemdir
banner
banner