Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 10. febrúar 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Mane byrjaður að æfa með Liverpool á ný
Mynd: Getty Images
Sadio Mane er byrjaður að æfa á nýjan leik með Liverpool eftir meiðsli aftan í læri.

Mane meiddist gegn Wolves fyrir 18 dögum og hefur misst af síðustu þremur leikjum Liverpool.

Senegalinn er nú byrjaður að æfa á nýjan leik sem eru góðar fréttir fyrir Liverpool fyrir leikinn gegn Morwich á laugardag og leikinn gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í næstu viku.

James Milner var einnig mættur á æfingu hjá Liverpool í dag en hann er klár að nýju eftir að hafa verið á meiðslalistanum að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner