Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 10. febrúar 2020 13:30
Elvar Geir Magnússon
McTominay nálgast endurkomu
Scott McTominay.
Scott McTominay.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Scott McTominay hjá Manchester United nálgast endurkomu.

Fyrst var talið að hann myndi ekki fara með í æfingabúðir liðsins á Spáni en hann er á staðnum og hefur verið að æfa einn. Hann er að snúa til baka eftir hnémeiðsli.

Það verður gleðiefni fyrir United þegar McTominay mætir aftur til leiks en hann hefur verið eitt bjartasta ljósið á erfiðu tímabili liðsins.

McTominay er bjartsýnn á að hann fari að æfa með liðsfélögum sínum síðar í þessari viku.

„Augljóslega þá er erfitt að horfa á fótboltaleiki þegar þú hefur verið vanur að spila þá. Þú vilt taka þátt og hjálpa liðinu. En ég er með rétta fólkið í kringum mig," segir McTominay.
Athugasemdir
banner
banner