Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, hefur verið orðuð við uppeldisfélag sitt, Hauka, að undanförnu.
Það yrðu vægast sagt áhugaverð félagaskipti þar sem Haukar eru í næst efstu deild. Sara yrði langstærsti prófíllinn sem spilað hefur í deildinni.
Það yrðu vægast sagt áhugaverð félagaskipti þar sem Haukar eru í næst efstu deild. Sara yrði langstærsti prófíllinn sem spilað hefur í deildinni.
„Maður heyrir að Sara Björk muni enda í Haukunum," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í Uppbótartímanum í gær þegar farið var yfir slúðrið.
„Það er athyglisvert. Það væri frábært fyrir Lengjudeildina ef Sara fer í Hauka," sagði Magnús Haukur Harðarson.
„Yrði það ekki smá steikt?" sagði Guðmundur þá þar sem Haukar eru í næst efstu deild. Sara hefur á síðustu árum meðal annars spilað fyrir Lyon og Juventus sem eru tvö af stærstu félögum Evrópu.
„Jú, mjög," sagði Magnús Haukur. „Haukar myndu gera sig gildandi en Sara Björk er samt ekki að fara að skora 20 mörk."
„Sara Björk í Lengjudeildinni, hversu mikið besti leikmaður deildarinnar yrði hún?" spurði Guðmundur.
„Það fer bara eftir því hvar hausinn er. Það væri frábært ef hún færi heim í uppeldisfélagið. Hún gæti örugglega fengið meiri pening annars staðar. Kannski nær hún að koma Haukum upp en mér finnst vanta aðeins meira í Haukaliðið til að það gerist," sagði Magnús Haukur.
Rætt var um það í þættinum að það væru í raun bara tveir möguleikar fyrir Söru í Bestu deildinni en það væru Breiðablik og Víkingur Reykjavík. Sara spilaði með Haukum og Breiðabliki áður en hún fór í atvinnumennsku en Víkingur hefur klárlega fjármagn til að krækja í Söru.
Hægt er að hlusta á Uppbótartímann í heild sinni í spilaranum hér að neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Athugasemdir

