Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tudor: Úrvalsdeildin verður að vera í forgangi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Igor Tudor þjálfari Tottenham svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær.

Tottenham heimsækir Atlético Madrid í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld og segir Tudor að enska úrvalsdeildin sé í forgangi.

Tottenham stóð sig vel í deildarkeppni Meistaradeildarinnar en hefur átt hörmulegt tímabil á Englandi og er óvænt í fallbaráttu, aðeins einu stigi fyrir ofan fallsvæðið þegar níu umferðir eru eftir.

„Hver einasti leikur er mikilvægur en miðað við stöðuna sem er komin upp verðum við að forgangsraða. Úrvalsdeildin verður að vera fremst í forgangsröðinni og það ætti ekki að koma neinum á óvart. Meistaradeildin er bara mögulegur bónus," sagði Tudor.

„Þetta þýðir samt ekki að við viljum detta úr leik. Við reynum að nota þennan leik til að greina betur hvar vandamálin okkar liggja og hvernig er best að takast á við þau. Það er mikilvægt að við horfum innávið og einbeitum okkur að sjálfum okkur og okkar eigin frammistöðu sem liðsheild. Við verðum að vaxa sem lið og spila betur."

Fyrirliðinn Cristian Romero getur spilað sinn fyrsta leik fyrir nýjan þjálfara eftir að hafa verið í leikbanni fyrstu þrjá leikina undir stjórn Tudor - þrír tapleikir í nágrannaslögum gegn Arsenal, Fulham og Crystal Palace.

Tudor hefur þá staðfest að brasilíski framherjinn Richarlison fær sinn fyrsta byrjunarliðsleik undir hans stjórn í Madríd í kvöld. Hann er einnig spenntur fyrir að fá mikilvæga leikmenn til baka úr meiðslum.

„Leikmenn eru að koma til baka úr meiðslum og hópurinn er að taka á sig betri mynd. Í mínum þremur leikjum við stjórnvölinn er liðið augljóslega búið að sakna meiddra lykilmanna. Við höfum verið að spila leikmönnum úr stöðu."

   06.03.2026 11:10
Fimm stjórar sem gætu tekið við Tottenham núna ef Tudor verður rekinn

Athugasemdir
banner
banner