Axel Disasi hefur farið vel af stað hjá West Ham en hann kom til félagsins á láni frá Chelsea í janúar. Disasi var í frystinum hjá Chelsea - var ekki í myndinni og æfði með varaliðinu.
Miðvörðurinn, sem er 27 ára gamall, var ekki í úrvalsdeildarhópi Chelsea og spilaði sinn fyrsta keppnisleik á tímabilinu í byrjun febrúar, skömmu eftir að hafa komið til West Ham.
Miðvörðurinn, sem er 27 ára gamall, var ekki í úrvalsdeildarhópi Chelsea og spilaði sinn fyrsta keppnisleik á tímabilinu í byrjun febrúar, skömmu eftir að hafa komið til West Ham.
„Ef ég segi allt þá kannski lendi ég í vandræðum, en þetta var erfitt. Það var mjög erfitt að þurfa að horfa á utan frá í hverri viku, alltaf að horfa á leikina í sjónvarpinu um helgar," sagði Disasi eftir sigur West Ham gegn Brentford í bikarnum í gær. West Ham mætir Leeds í 8-liða úrslitunum.
„Ég var bara að vinna, beið eftir að minn tími kæmi og þess vegna er ég bara að njóta núna því ég veit hvernig það er að vera ekki á vellinum heldur að horfa í sjónvarpinu."
„Ég lærði að vera þolinmóðari, að sýnafagmennsku, jafnvel þó kringumstæður væru erfiðar. Ég fékk hjálp frá fjölskyldunni og þau hjálpuðu mér mikið við að halda mér í góðu standi. Ég reyni að njóta hvers augnabliks því ég veit að þetta er ekki sjálfsagt."
West Ham hefur haldið hreinu fjórum sinnum í þeim sjö leikjum sem Disasi hefur spilað.
„Núna er ég á vellinum og það er góð tilfinning. Allir leikmenn vilja vera á vellinum. Ég var ekki í þeirri stöðu, en núna er ég að njóta mín. Hér er andrúmsloftið mjög vinalegt og ég nýt þess."
„Nuno sannfærði mig með því að spila mér. Það er það sem ég þarf. Sérstaklega að spila í minni stöðu, ég saknaði þess á síðasta tímabili þegar ég var að spila út úr stöðu. Hann leyfir mér að tjá mig og ég vona að það haldi áfram," segir Disasi sem var á láni hjá Aston Villa seinni hluta síðasta tímabils og spilaði m.a. í bakverðinum.
En sér hann fyrir sér að vera áfram hjá West Ham?
„Það eru níu leikir eftir! Ég vil ekki tala um það núna, ég vil bara njóta."
En hvað með drauminn um að spila með Frökkum á HM?
„Ég var með síðast (2022). Allir leikmenn vilja spila á HM, en eins og ég hef lært þá veit maður aldrei hvað getur gerst. Ég legg mig fram allar helgar til að vera í eins góðri stöðu og hægt er, en lífið kemur stundum á óvart," sagði Disasi.
Athugasemdir


