Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 10. apríl 2019 22:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna C-deild: 16 ára með þrennu í Haukasigri
Mynd: Hulda Margrét
Haukar 5 - 0 Augnablik
Mörk Hauka: Elín Björg Símonardóttir 3, Heiða Rakel Guðmundsdóttir, Regielly Oliveira Rodrigues.

Haukar áttu ekki í vandræðum með Augnablik þegar liðin mættust í Lengjubikar kvenna í kvöld. Liðin eru í C-deild Lengjubikarsins.

Elín Björg Símonardóttir, sem er nýorðin 16 ára (fædd 2003) fór á kostum í kvöld og skoraði þrennu fyrir Hauka. Heiða Rakel Guðmundsdóttir og Sierra Lelii voru einnig á skotskónum í 5-0 sigri Hauka.

Elín Björg kom við sögu í sex leikjum í Inkasso-deildinni síðasta sumar. Það verður spennandi að fylgjast með henni í sumar. Hún skoraði sjö mörk í fjórum leikjum í Lengjubikarnum.

Haukar enda í öðru sæti riðilsins, komast upp fyrir Augnablik á markatölu. Þróttur R. vinnur riðilinn.

Riðlarnir eru þrír í C-deild kvenna í Lengjubikarnum. Sigurvegarar riðlanna og eitt liðanna úr öðru sæti fara áfram í undanúrslit. Riðlakeppninni er ekki alveg lokið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner