Spezia 2 - 1 Sampdoria
1-0 Claudio Terzi ('20 )
1-1 Antonio Candreva ('24 )
2-1 Mbala Nzola ('61 , víti)
1-0 Claudio Terzi ('20 )
1-1 Antonio Candreva ('24 )
2-1 Mbala Nzola ('61 , víti)
Nýliðar Spezia unnu Sampdoria, 2-1, í Seríu A á Ítalíu í kvöld en sigurmarkið kom úr vítaspyrnu á 61. mínútu.
Claudio Terzi kom Spezia yfir á 20. mínútu áður en hægi vængmaðurinn Antonio Candreva jafnaði fyrir gestina aðeins fjórum mínútum síðar.
Mbala Nzola skoraði sigurmarkið fyrir Spezia úr vítaspyrnu eftir að Morten Thorsby braut á Tommaso Pobega innan teigs.
Spezia er í 14. sæti með 17 stig en Sampdoria í 11. sæti með 20 stig.
Athugasemdir