Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. nóvember 2018 11:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Liverpool og Fulham: Shaqiri og Fabinho byrja
Shaqiri snýr aftur í lið Liverpool. Hann fékk ekki að vera með til Serbíu af öryggisástæðum.
Shaqiri snýr aftur í lið Liverpool. Hann fékk ekki að vera með til Serbíu af öryggisástæðum.
Mynd: Getty Images
Liverpool og Fulham eigast við í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og fer fram á Anfield, heimavelli Liverpool.

Liverpool tapaði gegn Rauðu stjörnunni í Meistaradeildinni síðastliðinn þriðjudag. Frá þeim leik gerir Jurgen Klopp, stjóri liðsins, fjórar breytingar.

Joe Gomez, Fabinho, Shaqiri og Firmino koma inn fyrir Matip, Milner, Lallana og Sturridge.

Fulham er á botni deildarinnar fyrir leikinn. Það verður spennandi að fylgjast með Ryan Sessegnon á Anfield í dag.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Robertson, Wijnaldum, Fabinho, Shaqiri, Mane, Salah, Firmino.
(Varamenn: Mignolet, Lovren, Milner, Keita, Henderson, Sturridge, Moreno)

Byrjunarlið Fulham: Rico, Christie, Odoi, Mawson, Le Marchand, Chambers, Anguissa, Cairney, Schurrle, Mitrovic, Sessegnon.
(Varamenn: Bettinelli, Fosu-Mensah, Ream, Seri, Johansen, Kebano, Vietto)
Athugasemdir
banner
banner