Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. maí 2021 16:20
Ívan Guðjón Baldursson
Shakhtar Donetsk að stela þjálfaranum frá Sassuolo
Mynd: Getty Images
Úkraínska stórveldið Shakhtar Donetsk er að stela Roberto De Zerbi þjálfara Sassuolo.

Fréttamaðurinn virti Fabrizio Romano greinir frá þessu og heldur því fram að De Zerbi muni skrifa undir samning við Shakhtar á næstu vikum.

De Zerbi gerði flotta hluti við stjórnvölinn hjá Sassuolo á tímabilinu og mun taka við af Luis Castro sem mistókst að vinna úkraínsku deildina í ár. Shakhtar endaði ellefu stigum eftir Dynamo Kiev.

Það verður eitthvað um þjálfaraskipti á Ítalíu þar sem Fiorentina er einnig að leita sér að nýjum þjálfara. Gennaro Gattuso er efstur á blaði en hann mun fara frá Napoli í júní.
Athugasemdir
banner
banner