Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. október 2018 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Liðsfélagi Iniesta í bann fyrir að leka upplýsingum
Mynd: Getty Images
Andres Iniesta spilar með Vissel Kobe í japanska boltanum um þessar mundir.

Liðsfélagi hans, Shunki Takahashi, hefur verið settur í mánaðarlangt bann fyrir að leka upplýsingum um Iniesta til vinar sins.

Takahashi sendi vini sínum smáskilaboð til að segja honum að Iniesta yrði ekki með í leiknum gegn Urawa Reds í september.

Vinur hans fór með upplýsingarnar beint á Twitter og vakti þannig athygli fréttamanna, sem voru ekki lengi að gera sér mat úr þessu.

Að leka innherja upplýsingum er brot á reglum félagsins og þess vegna fær Takahashi ekki að spila keppnisleik næsta mánuðinn. Hann missir því af mikilvægum leikjum á lokaspretti tímabilsins, sem lýkur í nóvember.
Athugasemdir
banner
banner