Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrjár semja við Fjölni
Kvenaboltinn
Momolaoluwa Adesanmi handsalar samninginn við Veselin Chilingirov, þjálfara Fjölnis.
Momolaoluwa Adesanmi handsalar samninginn við Veselin Chilingirov, þjálfara Fjölnis.
Mynd: Fjölnir
Helena og Ísabella.
Helena og Ísabella.
Mynd: Fjölnir
Fjölnir leikur í 2. deild.
Fjölnir leikur í 2. deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikmenn hafa skrifað undir samninga við Fjölni fyrir komandi keppnistímabil.

Momolaoluwa Adesanmi, eða Mo eins og hún er kölluð, hefur skrifað undir eins árs samning við félagið og mun því spila áfram með Fjölni á komandi keppnistímabili. Mo gekk til liðs við félagið á síðasta ári eftir langvarandi meiðsli og vann sig hægt og bítandi upp í liðið.

Mo lék einnig með Fjölni í Lengjudeildinni tímabilið 2022 og hefur nú þegar spilað 28 leiki fyrir félagið. „Hún er mikil fyrirmynd innan hópsins og leggur sitt af mörkum til að hjálpa yngri leikmönnum að þróast og bæta sig," segir í tilkynningu frá félaginu.

Vesko, þjálfari liðsins, hafði þetta um framlenginguna að segja: „Það er mikill ánægja að tryggja Mo áfram hjá félaginu á næsta tímabili. Hún er gríðarlega sterkur varnarmaður sem gefur okkur mikinn styrk í leikjum. Mo er hugrökk, vinnusöm og tilbúin að takast á við allar áskoranir til að hjálpa liðinu. Hún sneri sterk til baka eftir meiðsli og er nú stöðugt að sýna gæði sín, nánast dag frá degi. Ég hlakka mikið til að sjá hana ná fullum möguleikum sínum á tímabilinu.“

Þá samdi félagið við Helenu Fönn Hákonardóttur og Ísabellu Rós Bjarkadóttur til ársins 2027.

Helena og Ísabella, sem eru að gera sína fyrstu samninga við Fjölni, eru báðar efnilegir leikmenn fæddar árið 2010 og hafa verið mikilvægur hluti af liðum félagsins í 2. og 3. flokki. Samhliða því hafa þær einnig aflað sér dýrmætrar reynslu með þátttöku í leikjum og æfingum með meistaraflokki.

Helena er kantmaður og lék sinn fyrsta leik fyrir Fjölni árið 2024 í útileik gegn Sindra og hefur alls spilað átta leiki fyrir meistaraflokk. Ísabella er miðjumaður og lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk í fyrstu umferð tímabilsins 2025 gegn Selfossi. Hún hefur alls spilað fimm leiki fyrir meistaraflokk.

„Fjölnir bindur miklar vonir við báðar til framtíðar og lítur á þær sem mikilvæga leikmenn og fyrirmyndir innan félagsins," segir í tilkynningu félagsins.
Athugasemdir
banner