Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   mið 11. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir úr MLS-deildinni í lífstíðarbann
Yaw Yeboah.
Yaw Yeboah.
Mynd: EPA
MLS-deildin í Norður-Ameríku hefur gefið það út að tveir leikmenn hafi verið dæmdir í lífstíðarbann frá deildinni.

Fótboltamenn mega ekki veðja á leiki í þeim deildum sem þeir spila í, en Derrick Jones og Yaw Yeboah gerðu sekir um slíkt. Þeir meira að segja veðjuðu á leiki hjá sínum eigin liðum sem er stranglega bannað.

MLS sagði í tilkynningu að deildin hefði fengið ábendingar um grunsamleg veðmál og ráðið lögmannsstofu til að rannsaka málið.

Leikmennirnir voru sendir í leyfi í lok október 2025 á meðan rannsóknin stóð yfir. Að lokum kom í ljós í rannsókninni að báðir leikmennirnir veðjuðu mikið á fótbolta á tímabilinu 2024 og 2025, þar á meðal á sín eigin lið.

Yeboah og Jones spiluðu saman eitt tímabil með Columbus Crew og voru greinilega í einhverju samtogi þar sem í einu tilviki veðjuðu þeir báðir á að Jones myndi fá gult spjald í einum leik, sem svo gerðist.

Jones spilaði áfram með Columbus Crew í fyrra en Yeboah gekk í raðir Los Angeles FC. Yeboah samþykkti svo að rifta samningi sínum í Los Angeles og fór til Kína.

Þeir félagar munu núna aldrei fá að spila aftur í MLS-deildinni.
Athugasemdir
banner