Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Staldraði stutt við á Króknum og er kominn í starf á Ásvöllum
Kvenaboltinn
Svanberg Óskarsson.
Svanberg Óskarsson.
Mynd: Haukar
Svanberg Óskarsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Haukum, stuttu eftir að hann hætti sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Tindastóli.

Svanberg var ráðinn til Tindastóls eftir að liðið féll úr Bestu deild kvenna síðasta sumar. Hann átti að stýra liðinu í sumar en ákvað að hætta eftir aðeins þrjá mánuði.

Svanberg kemur nú inn í þjálfarateymi 4. flokks stúlkna, 5. flokks stúlkna, 7. flokks drengja og 8. flokks drengja hjá Haukum.

Svanberg, sem er fæddur 1997, hefur búið í Danmörku og Færeyjum frá 14 ára aldri. Svanberg er með B.Sc. próf í íþróttafræði og M.Sc. próf í íþróttaverkfræði frá háskólanum í Álaborg. Svanberg hóf þjálfaraferil sinn með Aalborg KFUM og Vejgaard Boldspilklub í Danmörku. Síðar þjálfaði Svanberg hjá Fortuna Hjörring hvar hann var styrktarþjálfari yngri flokka og þjálfari hjá U18 stúlkna.

Tímabilin 2024 og 2025 þjálfaði Svanberg hjá KÍ Klaksvík í Færeyjum. Fyrra árið sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og aðalþjálfari U16 stúlkna og U15 drengja. Síðara árið var hann aðalþjálfari varaliðs meistaraflokks karla hjá KÍ og U17 drengja.

„Við bjóðum Svanberg velkominn til starfa," segir í tilkynningu Hauka.
Athugasemdir
banner
banner