Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 13. apríl 2019 18:53
Hafliði Breiðfjörð
Heimir tapaði gegn fyrrum aðstoðarmanni Mourinho
Heimir við stjórnvölinn hjá Al Arabi.
Heimir við stjórnvölinn hjá Al Arabi.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Al Arabi 0 - 3 Al Duahil
0 - 1 Bassam Hisham ('40)
0 - 2 Edmilson Junior ('51)
0 - 3 Y. El-Arabi ('73)

Al Arabi, lið Heimis Hallgrímssonar í Katar, tapaði leik sínum í dag gegn Al Duhail.

Leiknum er nýlega lokið en Al Duhail vann 0-3 sigur á heimavelli Al Arabi.

Al Duhail er þjálfað af Rio Faria fyrrverandi aðstoðarmanni Jose Mourinho hjá Porto, Chelsea, Inter, Real Madrid og Man Utd.

Lið Heimis er í 6. sæti deildarinnar með 30 stig eftir 22 leiki en gestirnir í dag eru í 2. sætinu, 7 stigum frá toppnum.

Athugasemdir
banner
banner