Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 13. september 2018 23:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Tuchel: Ég lofaði aldrei Areola að hann yrði númer eitt
Areola er búinn að fá svakalegan keppinaut um byrjunarliðssætið hjá PSG.
Areola er búinn að fá svakalegan keppinaut um byrjunarliðssætið hjá PSG.
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel hefur gefið út að koma Gianluigi Buffon hafi breytt stöðu Alphonse Areola hjá félaginu og að hann væri ekki endilega markvörður númer eitt hjá félaginu.

Areola kom upp í gegnum unglingastarf PSG og virtist hafa tryggt sér byrjunarliðssæti hjá félaginu eftir að hafa spilað 34 leiki í Ligue 1 á síðasta tímabili undir stjórn Unai Emery.

En Buffon sem virtist vera við það að leggja hanskana á hilluna, gekk til liðs við PSG frá Juventus á frjálsri sölu og seti stöðu Areola strax í vafa. Tuchel hafði upphaflega sagt Areola að hann væri í lykilstöðu hjá félaginu en hefur nú dregið það til baka.

Ég vil útskýra það sem ég sagði. Ég sagði Areola að hann væri í lykilstöðu til þess að vera aðalmarkvörður áður en Buffon kom. En Gigi kom og það breytti öllu. Það er mikilvægt að muna að ég sagði ekki að Areola yrði númer eitt.”

Athugasemdir
banner
banner