Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. september 2019 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho: Mínar bestu minningar á ég frá Madríd
Mynd: Getty Images
Portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourinho hefur komið nokkuð víða við á stjóraferli sínum en bestur minningarnar segist hann eiga frá tíma sínum í Madríd.

Mourinho tók við Real Madrid árið 2010 eftir að hafa náð frábærum árangri með Inter á Ítalíu þar sem hann var frá árinu 2008.

„Ég naut þess mest að vera hjá Real Madrid því þar lærði ég mest sem þjálfari og persóna, ég fékk mikið út úr dvöl minni þar."

„Mínar bestu minningar á þjálfaraferlinum á ég frá Madríd, þetta var frábær tími," sagði Mourinho.

Jose Mourinho starfar þessa stundina sem sparkspekingur hjá Sky Sports en hann hefur ekki fundið sér nýtt þjálfarastarf eftir að hafa verið rekinn frá Manchester United í desember 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner