Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 13. desember 2018 13:30
Elvar Geir Magnússon
Pereira: Hungraður í meiri spiltíma
Andreas Pereira.
Andreas Pereira.
Mynd: Getty Images
Andreas Pereira, leikmaður Manchester United, vill fá fleiri spilmínútur en framtíð hans er í óvissu.

Þessi 22 ára leikmaður spilaði allan leikinn í 2-1 tapi gegn Valencia í Meistaradeildinni í gær en það var aðeins hans sjötti leikur á tímabilinu og sá fyrsti síðan hann fékk sex mínútur gegn Chelsea í október.

„Ég er hungraður í meiri spiltíma. Ég reyni að gera mitt besta til að fá að taka þátt. Það var gott að fá mínútur. Það tók mig smá tíma að ná takti en ég gerði mitt besta," sagði Pereira eftir leikinn í gær.

Pereira hefur gengið illa að vinna sér inn sæti í liði United og samkvæmt Mirror eru Arsenal og Chelsea með augu á honum.

Sagt er að Manchester United sé tilbúið að hlusta á tilboð í leikmanninn í janúar. Núgildandi samningur hans rennur út eftir tímabilið en United á möguleika á að framlengja honum.
Athugasemdir
banner
banner