Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 14. febrúar 2019 21:28
Arnar Helgi Magnússon
Forseti Real segir Benzema besta framherja í heimi
Mynd: Getty Images
Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir að félagið þurfi ekki að eyða pening í leikmenn og að Real sé með bestu leikmenn í heimi.

Perez var á dögunum spurður út í félagsskiptamál liðsins í sumar.

„Ég er á því að við séum með besta leikmannahóp í heimi og titlarnir sem að við höfum unnið undanfarin ár sanna það. Við eyðum ekki í leikmenn bara til þess að eyða."

„Maður les ýmislegt í fjölmiðlum, eins og til dæmis það að við þurfum nýjan framherja. Karim Benzema er búinn að sýna það að hann er besti framherji í heimi."

Real hafði betur gegn Ajax í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi en það var einmitt Karim Benzema sem að kom Real yfir í leiknum.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner