Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. október 2018 20:41
Arnar Daði Arnarsson
Raggi Sig verður í banni í Brussel
Icelandair
Raggi Sig í leiknum í kvöld gegn Sviss.
Raggi Sig í leiknum í kvöld gegn Sviss.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson verður í leikbanni þegar Ísland mætir Belgum í Brussel 15. nóvember næstkomandi í lokaleik Íslands í Þjóðadeildinni.

Raggi fékk að líta gula spjaldið í uppbótartíma í 2-1 tapi Íslands gegn Sviss á Laugardalsvellinum í kvöld.

Þetta var annað gula spjald Ragnars í Þjóðadeildinni en hann fékk einnig spjald í 6-0 tapi Íslands gegn Sviss í 1. umferðinni.

Ísland er án stiga eftir þrjá leiki en Belgía og Sviss eru á toppi riðilsins með sex stig.
Athugasemdir
banner
banner