Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, birtir í dag myndband á Instagram þar sem hann heldur klósettrúllu á lofti.
Rúnar, sem er leikjahæsti landsliðsmaður í sögu Íslands, heldur rúllunni á lofti í dágóðan tíma og sparkar henni svo út um svalarhurð.
Á veraldarvefnum gengur nú um áskorun manna á milli að halda klósettrúllu á lofti. Skorað var á Rúnar, hann tók áskoruninni og skoraði á fjóra leikmenn KR til að gera það sama.
Hann skoraði á þá Ástbjörn Þórðarson, Björgvin Stefánsson, Kristján Flóka Finnbogason og Ægir Jarl Jónasson.
Myndbandið má sjá hér að neðan.
Rúnar Kristinsson dömur mínar og herrar 🏆 pic.twitter.com/SgUruhozFg
— Sindri Snær Jensson (@sindrijensson) March 17, 2020
Athugasemdir