Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. júlí 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Bruce sagður hafa verið númer ellefu á lista Newcastle
Steve Bruce.
Steve Bruce.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmönnum Newcastle var ekki skemmt í gær þegar Steve Bruce var ráðinn nýr knattspyrnustjóri félagsins.

Stuðningsmenn eru óánægðir með ráðninguna og segja hana metnaðarlitla hjá Mike Ashley eiganda Newcastle.

Bruce tekur við af Rafael Benítez sem náði ekki samkomulagi um nýjan samning eftir fínt starf hjá Newcastle.

Samkvæmt frétt Sky Sports var Bruce ekki á upphaflegum lista Newcastle yfir mögulega stjóra. Samkvæmt fréttinni voru tíu stjórar á undan honum í röðinni en þá má sjá hér að neðan.

Þeir sem voru á undan Bruce á lista
Jose Mourinho
Mikel Arteta
Patrick Vieira
Roberto Martinez
Sean Dyche
Sam Allardyce
Garry Monk
Chris Hughton
Eddie Howe
Mark Hughes
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner