Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 18. október 2021 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar meiddur - Leipzig sló á létta strengi
Neymar er meiddur.
Neymar er meiddur.
Mynd: EPA
Brasilíska stórstjarnan Neymar verður ekki með Paris Saint-Germain gegn RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu á morgun.

Neymar var í landsliðsverkefni með Brasilíu í síðustu viku og varð fyrir meiðslum þar.

Meiðslin virðast vera smávægileg og verður Neymar frá í nokkra daga.

Argentíski miðjumaðurinn Leandro Paredes verður ekki heldur með PSG í þessum leik.

Samfélagsmiðladeild Leipzig ákvað aðeins að slá á létta strengi í kjölfarið á þessum fréttum. „Svo núna þurfum við bara að takast á við Messi og Mbappe," var skrifað á Twitter-reikning félagsins eins og sjá má hér að neðan.

Það er ekki amalegt að vera með þrjár ofurstjörnur í sínu liði. Messi og Mbappe taka við keflinu á morgun.


Athugasemdir
banner
banner