Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 18. desember 2018 14:30
Magnús Már Einarsson
Klopp: Mourinho er framúrskarandi stjóri
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
„Hann er mikill keppnismaður og mjög metnaðarfullur. Hann á alla mína virðingu," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, aðspurður út í Jose Mourinho á fréttamannafundi í dag.

Mourinho var rekinn frá Manchester United í morgun, tveimur dögum eftir að liðið tapaði 3-1 gegn Klopp og lærisveinum hans í Liverpool.

„Hann er ótrúlega sigursæll og ég get ímyndað mér að síðustu mánuðir hafi ekki verið skemmtilegir fyrir neinn, sérstaklega hann," sagði Klopp.

„Það er ekki gaman þegar þú þarft að glíma við spurningar á hverjum degi en enginn getur tekið af honum þá hluti sem hann hefur unnið."

„Ég óska þess að hann hafi það í huga en ekki aðra hluti sem hafa átt sér stað undanfarna mánuði. Hann er framúrskarandi stjóri."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner