Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 21. júní 2020 22:46
Stefán Marteinn Ólafsson
Jói Kalli: Fókus bara á næsta verkefni
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Skagamenn heimsóttu FH í Kaplakrika þegar 2.umferð Pepsi Max deildar karla lauk nú í kvöld. Skagamenn voru líkt og FH með þrjú stig fyrir leikinn í kvöld eftir magnaðan sigur á móti KA í fyrstu umferð en urðu að sætta sig við tap í kvöld gegn FH 2-1.

„Ég er nátturlega svekktur að hafa tapað, en virkilega ánægður með frammistöðuna hjá leikmönnunum, þeir lögðu ansi mikið í þetta og héldu sannfæringu og héldu áfram, við náðum aðeins að klóra í bakkann þarna í restina og ég var ánægður með það." Sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA eftir leikinn í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 2 -  1 ÍA

Skagamenn virtust eiga fá svör við FH-ingum í dag en áttu þó flottan lokakafla sem skilaði einu marki en lengra komust þó Skagamenn ekki að sinni.
„Við héldum boltanum ágætlega og þeir voru þéttir tilbaka sérstaklega í fyrri hálfleik og voru að loka svæðum og við náðum ekki að komast í gegnum þá, ég hefði viljað komast meira aftur fyrir þá, við vildum keyra svolítið meira sérstaklega á bakverðina hjá þeim og það heppnaðist ekki alveg nógu vel hjá okkur, samt komumst við í nokkrar fínar stöður sem að vantaði bara lokasendinguna og herslumuninn, svo fáum við þessi tvö mörk í andlitið strax í byrjun seinni hálfleiks og það varð mjög erfitt eftir það." 

Aðspurður um hvað það væri sem Skagaliðið gæti tekið út úr þessum leik og hver stefna ÍA í sumar væri hafði Jóhannes Karl þetta að segja.
„Það var bara það að þegar við lendum 2-0 undir hérna úti á móti FH að þá höldum við áfram, höldum plani, höldum skipurlagi og höldum áfram að spila fótbolta og náðum að ógna vel að marki FH í restina og það er það sem ég er virkilega sáttur með, karakterinn í strákunum." 

„Stefnan er að fara áfram í bikarnum á miðvikudaginn, það er bara næsta verkefni og við ætlum okkur þar áfram." 


Jóhannes Karl á þá ekki von á frekari breytingum á leikmannahópnum fyrir sumarið.
„Nei við erum virkilega ánægðir með leikmannahópinn eins og hann er og höldum bara áfram að gera núverandi leikmenn ennþá betri og klára í slaginn og fókus bara á næsta verkefni."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner