Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. júlí 2018 17:57
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikarinn: Berglind Björg sá um Val í undanúrslitum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 2 - 0 Valur
1-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('4)
2-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('75)

Blikar fengu Val í heimsókn í sannkölluðum stórleik í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í dag.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir slapp ein í gegn og kom Blikum yfir snemma leiks.

Bæði lið fengu fín færi en leikurinn var nokkuð bragðdaufur. Berglind Björg tvöfaldaði forystu Blika og innsiglaði þar með sigurinn þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.

Hún skoraði eftir fallega stoðsendingu frá Selmu Sól Magnúsdóttur og reyndist það síðasta mark leiksins.

Breiðablik mætir Stjörnunni í úrslitaleiknum, en liðin mættust í Pepsi-deildinni á miðvikudaginn og höfðu Blikar betur með einu marki gegn engu. Stjarnan lagði þó Fylki 9-1 að velli í undanúrslitum fyrr í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner