Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 21. ágúst 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Aston Villa reynir að stela Bolasie af Boro
Mynd: Getty Images
Yannick Bolasie, kantmaður Everton, fundaði í dag með Steve Bruce stjóra Aston Villa.

Félög í neðri deildunum á Englandi geta ennþá fengið leikmenn á láni og Bolasie hefur fengið leyfi frá Everton til að fara á lán.

Í gær fundaði Bolasie með Tony Pulis, stjóra Middlesbrough, en nú er Aston Villa að reyna að krækja í leikmanninn.

Hinn 29 ára gamli Bolasie er ekki í myndinni hjá Marco Silva, stjóra Everton, og hann þarf nú að velja um að spila með Aston Villa eða Middlesbrough í vetur.

Middlesbrough er á toppnum í Championship deildinni en Aston Villa er þremur stigum á eftir í fimmta sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner