Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. mars 2019 12:30
Arnar Daði Arnarsson
Stúka reist við gervigrasvöllinn að Varmá
Heimavöllur Aftureldingar.
Heimavöllur Aftureldingar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í morgun var samþykkt í bæjarráði Mosfellsbæjar að ráðast í stúkubyggingu við gervigrasvöll að Varmá heimavelli Aftureldingar sem leikur í Inkasso-deild karla og kvenna auk fleiri framkvæmda.

Gert er ráð fyrir 300 sæta stúku en gerð er krafa um slíka stúku í leyfiskerfi KSÍ fyrir félög sem leika í Inkasso-deild karla. Afturelding er nýliðar í Inkasso-deild karla.

„Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er samkvæmt kostnaðaráætlun um 25 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að stúkan sjálf kosti um 13 milljónir króna. Einnig verður öryggissvæði í kringum gervigrasvöllinn stækkað þar sem nú er lagður malbikaður stígur. Þessi framkvæmd mun stækka gervisgrasvöllinn um ca. 2 metra á breidd og fjóra á lengd. Stækkun öryggissvæðisins kostar um 10 milljónir króna. Varamannaskýli verða sömuleiðis stækkuð og salernisaðstaða verður lagfærð til muna," segir á heimasíðu Aftureldingar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner