Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. júlí 2019 15:52
Elvar Geir Magnússon
Andre Silva í læknisskoðun hjá Mónakó - Fekir hjá Betis
Andre Silva fer til Mónakó.
Andre Silva fer til Mónakó.
Mynd: Getty Images
Portúgalski sóknarmaðurinn Andre Silva er í læknisskoðun hjá franska félaginu Mónakó.

Talið er að Mónakó muni kaupa Silva frá AC Milan á 30 milljónir evra en leikmaðurinn var hjá Sevilla á lánssamningi á síðasta tímabili.

AC Milan vonast til að nota peninginn sem félagið fær fyrir Silva til að fá argentínska sóknarmanninn Angel Correa frá Atletico Madrid.

Það eru fleiri fréttir úr félagaskiptum í Evrópuboltanum en Nabil Fekir, fyrirliði Lyon, er í læknisskoðun hjá Real Betis á Spáni.

Þessi 26 ára örvfætti sóknarmiðjumaður hefur verið orðaður við Liverpool en nú er ljóst að hann er á leið í La Liga. Kaupverðið er talið í kringum 20 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner