Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. september 2018 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Lamela: Messi besti leikmaður sem ég hef séð
Erik Lamela
Erik Lamela
Mynd: Getty Images
Erik Lamela, leikmaður Tottenham Hotspur og argentínska landsliðsins, segir Lionel Messi hjá Barcelona vera besta leikmann sem hann hefur séð spila.

Það fer ekki á milli mála að Messi er einn besti knattspyrnumaður allra tíma en hann hefur verið valinn besti leikmaður heims fimm sinnum og unnið Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum og spænsku deildina níu sinnum.

Lamela, samherji Messi í argentínska landsliðinu, segir að hann sé sá besti.

„Leo er augljóslega mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur, líka bara allt sem hann gerir fyrir okkur bæði sem leikmaður persóna," sagði Lamela.

„Það sem ég hef séð þegar ég hef æft og spilað með honum segir mér það að hann er besti leikmaður sem ég hef séð spila frá því ég byrjaði að fylgjast með fótbolta," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner