Haukar þurftu að sætta sig við tap á heimavelli á móti Þrótti R. í kvöld. Haukar eru því enn án sigurs í Inkasso deildinni, með tvö stig eftir fjórar umferðir og sitja því í fallsæti.
Kristján Ómar þjálfari Hauka gaf ekki kost á sér í viðtal en í stað hans mætti aðstoðarþjálfarinn Hilmar Trausti, hann hafði þetta um leikinn að segja.
„Það er orðið þreytt að fá hrós fyrir að vera duglegir þegar sigrarnir detta ekki. Við settum allt í þennan leik og verðum að taka það með okkur áfram í þann næsta.“
Haukar leika gegn Magna frá Grenivík í fimmtu umferð.
Athugasemdir