Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ágúst Orri fer ekki til Póllands - „Hélt ég væri að fara út en síðan breyttist það"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður Breiðabliks, var sterklega orðaður við pólska félagið Rakow í byrjun árs. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net voru viðræður milli félaganna vel á veg komnar en ekkert varð úr skiptunum.

Glugginn í Póllandi lokar á morgun en Ágúst Orri staðfestir í samtali við Fótbolta.net að hann fari ekki til Póllands, allavega ekki í þessum glugga.

„Glugginn í Póllandi er að loka, eins og staðan er núna er ég leikmaður Breiðabliks. Það er einhver áhugi og hann gæti aukist með landsleiknum. Ég sé bara til hvað gerist í framhaldinu, einbeitingin er á Breiðabliki og það er stutt í mót. Ég er spenntur fyrir komandi tímabili," sagði Ágúst Orri við Fótbolta.net í gær. Hann er staddur í Mexíkó að undirbúa sig fyrir vináttulandsleik gegn Mexíkó, en það reyndar óvíst hvort sá leikur verði spilaður. Það er vegna ólgu í landinu í kjölfarið á því að herinn drap glæpaforingjann El Mencho.

Ágúst var spurður frekar út í áhugann frá Póllandi. Hann hefur áður verið seldur frá Breiðabliki, fyrst til Malmö í Svíþjóð og svo til Genoa á Ítalíu.

„Ég held að Pólland sé 'off', allavega á þessum tímapunkti. Ég varð auðvitað smá svekktur þegar það varð raunin, ég vil auðvitað komast aftur út og Pólland er mjög stór gluggi. En svona er fótboltinn, maður veit aldrei hvar maður er einhvern veginn, hélt að ég væri að fara út en síðan breyttist það. Ég held bara mínu striki og það kemur vonandi eitthvað í framtíðinni."

„Já, það er 100% markmiðið að reyna komast út í næsta glugga eða þá eftir næsta sumar. Markmiðið er að standa mig í því verkefni sem ég er í, þarf að standa mig mjög vel og það eru miklar væntingar gerðar til mín á næsta tímabili á Íslandi. Það er líka mjög skemmtilegt."


Í lok síðasta tímabils spilaði Ágúst Orri talsvert sem fremsti maður og vakti athygli fyrir öfluga frammistöðu í Sambandsdeildinni. En hver er hans besta staða í dag?

„Ég eiginlega veit ekki akkúrat núna hver mín uppáhaldsstaða er. Ég hef verið að finna mig ágætlega í senternum, það er mjög skemmtileg staða og ég hef mátt vera eiginlega hvar sem er þegar við erum með boltann - í frjálsu hlutverki einhvern veginn. En besta staðan er sennilega vinstri kantur."

Ágúst fór ekki til Póllands til að kanna aðstæður hjá félaginu, segir að ferlið hafi ekki verið komið alveg svo langt. Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net voru félögin mjög nálægt samkomulagi en skiptin duttu upp fyrir sig. Upphæðin sem heyrðist var 80 milljónir króna. Ertu eitthvað svekktur út í Blikana?

„Nei, ég skil félagið ágætlega. Það er gott fyrir mig að félagið metur mig mikils og verðmiðinn er hár af því þeir meta mig á þá upphæð. Ég er ekkert ósáttur," segir Ágúst Orri.
Athugasemdir
banner
banner
banner