Börsungar vilja varnarmann Bournemouth - Man Utd vill tvo leikmenn - Igor Thiago til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   mán 24. maí 2021 21:58
Baldvin Már Borgarsson
Jói Kalli: Sanngjörn niðurstaða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var ekki sáttur með 3-2 tap sinna manna gegn Breiðablik á Norðurálsvellinum fyrr í kvöld.

Jói Kalli talaði um að niðurstaða leiksins hafi verið sanngjörn og að Blikar hafi verið gríðarlega góðir í leiknum.

Lestu um leikinn: ÍA 2 -  3 Breiðablik

„Auðvitað vill maður aldrei tapa en kannski þegar upp er staðið var þetta bara sanngjörn niðurstaða, Blikarnir voru öflugri í dag, við vorum kannski pínu klaufar og gáfum færi á okkur í skyndisóknum og vorum stundum að tapa boltanum inná miðjunni sem við vildum ekki gera og Blikarnir eru stórhættulegir þegar þeir komast í svona skyndiupphlaup.''

Skagamenn voru oft með góða pressu framarlega á vellinum en það vantaði oft að fylgja því á eftir með seinni bylgjunni, hvað fannst Jóa klikka þar til að refsa Blikum betur?

„Ég held að það sé mjög erfitt að pressa Blikana í heilan leik, við löguðum það aðeins í hálfleik fannst mér og inn í seinni hálfleikinn pressuðum við þá á köflum vel, en svo féllum við líka þétt til baka og lokuðum á þá í lágpressunni.''

„Það voru kannski þessi skil þarna í fyrri hálfleik þar sem við vorum ekki með það á hreinu hvort við ætluðum að pressa eða falla til baka og vera þéttir.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar fer Jói nánar út í leikinn, uppskeruna hingað til, breytingarnar frá sigurleiknum síðast og fleira.
Athugasemdir
banner
banner
banner