Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 25. mars 2019 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Æfingaleikur: Þróttur R. sigraði Leikni R.
Þróttur R. sigraði Leikni R.
Þróttur R. sigraði Leikni R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. sigraði Leikni R. í æfingaleik sem leikinn var í Egilshöll á föstudaginn.

Það vantaði nokkuð marga fastamenn í liðin og því fengu margir ungir og efnilegir tækifæri í leiknum.

Leiknir R. komst yfir í fyrri hálfleik en Þróttarar skoruðu eftir það þrjú mörk, mörkin skoruðu þeir Lárus Björnsson og Róbert Hauksson en sá fyrrnefndi skoraði tvö. Þessir leikmenn leika báðir í 2. flokki.

Þessi lið eru bæði að undirbúa sig fyrir Inkasso-deildina sem hefst 4. maí. Leiknir R. tekur á móti Magna í fyrstu umferð en Þróttur R. mætir Njarðvík.


Athugasemdir
banner
banner
banner