Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 27. júní 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Heitasta liðið mætir einu því kaldasta
Úr leik KR og FH á dögunum.
Úr leik KR og FH á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Grótta og Afturelding mætast í dag.
Grótta og Afturelding mætast í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Í kvöld klárast 8-liða úrslitin í Mjólkurbikar karla. Einnig er leikið í Inkasso-deild karla, 2. deild karla, 3. deild karla og 4. deild á þessum fimmtudegi.

Njarðvík heimsækir heitasta lið landsins um þessar mundir, KR, á Meistaravelli í kvöld. Það hefur lítið sem ekkert gengið upp hjá Njarðvík í síðustu leikjum og er liðið komið í fallsæti Inkasso-deildarinnar. Síðasti leikur liðsins endaði með 5-1 tapi gegn Haukum. Ná Njarðvíkingar að rísa upp fyrir leikinn í kvöld?

FH mætir Grindavík og Breiðablik og Fylkir etja kappi í hinum leikjum kvöldsins í Mjólkurbikarnum.

Í Inkasso-deildinni mætast Keflavík og Leiknir R.. Stefán Gíslason var að hætta sem þjálfari Leiknis í gær og er Sigurður Heiðar Höskuldsson tekinn við. Afturelding og Grótta mætast einnig í nýliðaslag í kvöld.

Í 2. deild heimsækir Völsungur Tindastól og í 3. deildinni eru þrír leikir þar sem topplið KV heimsækir botnlið KH meðal annars. Í 4. deild karla eru þrír leikir og má sjá alla leiki dagsins hér að neðan.

fimmtudagur 27. júní

Inkasso deildin - 1. deild karla
19:15 Keflavík-Leiknir R. (Nettóvöllurinn)
19:15 Afturelding-Grótta (Varmárvöllur - gervigras)

2. deild karla
19:15 Tindastóll-Völsungur (Sauðárkróksvöllur)

3. deild karla
19:15 KH-KV (Valsvöllur)
20:00 Skallagrímur-Kórdrengir (Skallagrímsvöllur)
20:00 Sindri-Höttur/Huginn (Sindravellir)

Mjólkurbikar karla
19:15 KR-Njarðvík (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Fylkir (Kópavogsvöllur)
19:15 FH-Grindavík (Kaplakrikavöllur)

4. deild karla - A-riðill - 4. deild karla
19:00 Ísbjörninn-SR (Kórinn - Gervigras)
20:00 Árborg-Björninn (JÁVERK-völlurinn)

4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
20:00 Álafoss-Léttir (Tungubakkavöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner