Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. september 2019 18:50
Ívan Guðjón Baldursson
Ansu Fati meiddur á hné
Ekki er ljóst hversu lengi ungstirnið verður frá.
Ekki er ljóst hversu lengi ungstirnið verður frá.
Mynd: Getty Images
Ansu Fati er ekki í leikmannahópi Barcelona sem heimsækir Getafe um helgina.

Börsungar hafa verið að glíma við mikið af meiðslavandræðum í sóknarlínunni en Luis Suarez og Ousmane Dembele eru komnir til baka.

Lionel Messi er utan hóps vegna meiðsla ásamt varnarmannanna Jordi Alba og Samuel Umtiti.

Fati er aðeins 16 ára gamall og kom gífurlega sterkur inn í liðið í fjarveru Messi.

Barca hefur farið rólega af stað og er með tíu stig eftir sex umferðir, fjórum stigum eftir toppliði Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner