Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 27. september 2019 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Mike Dean kylfuberi á Evrópumóti kvenna
Mynd: Getty Images
Úrvalsdeildardómarinn Mike Dean er vel þekktur enda hefur hann verið meðal fremstu dómara enskrar knattspyrnu undanfarna áratugi.

Hann er þekktur fyrir skemmtilega framkomu og var mikið í fréttunum í upphafi sumars þegar hann fylgdist með uppáhaldsliði sínu, Tranmere Rovers, fara upp um deild í annað sinn á tveimur árum.

Dean var í miklu stuði á áhorfendapöllunum og rataði í fréttirnar. Stuðningsmenn Tranmere mættu með Mike Dean grímur á úrslitaleik liðsins í D-deildar umspilinu í lok maí.

Þessi skemmtilegi karakter komst aftur í fréttirnar fyrr í dag. Glöggir áhorfendur kvennagolfsins tóku þá eftir því að hann var kylfuberi fyrir hina áströlsku Whitney Hillier sem keppir á Evrópumóti kvenna.


Athugasemdir
banner