Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 28. febrúar 2020 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andri Fannar í hóp gegn Lazio á morgun
Andri Fannar Baldursson.
Andri Fannar Baldursson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Fannar Baldursson er í 22 manna hópi Bologna sem hefur verið valinn í leikinn gegn Lazio í ítölsku úrvalsdeildinni á morgun.

Andri er aðeins 18 ára gamall. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Bologna í 1-1 jafnteflinu gegn Udinese í Seríu A um síðustu helgi og hlaut hann lof fyrir innkomu sína.

„Þetta kom mér á óvart í fyrstu þegar ég fékk kallið en ég var klár í þetta og spenntur fyrir að fá tækifærið. Ég er ótrúlega ánægður með þetta. Ég ætla að halda áfram að bæta mig og er hungraður í fleiri tækifæri," sagði Andri eftir fyrsta leik sinn.

Andri Fannar kom til Bologna frá Breiðabliki fyrir rúmu ári síðan og hefur unnið sig hratt upp hjá ítalska félaginu. Það verður spennandi að sjá hvort hann spili sinn annan aðalliðsleik á morgun.

Fyrir leikinn á morgun er Bologna í tíunda sæti og Lazio í öðru sæti. Með góðum úrslitum fer Lazio á topp deildarinnar.

Sjá einnig:
Andri sá yngsti í topp fimm deildunum - Fékk smá hnút í magann


Athugasemdir
banner
banner