Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 29. júlí 2020 16:15
Magnús Már Einarsson
Merson: Chelsea á að kaupa Stones
Mynd: Getty Images
Paul Merson, sérfræðingur Sky, segir að Chelsea eigi að reyna að fá John Stones í sínar raðir frá Manchester City í sumar.

„Ég myndi reyna að fá John Stones og spila honum í miðjunni í þriggja manna vörn," sagði Merson.

„Ég myndi hafa Antonio Rudiger og Christensen til hliðar við hann. Chelsea vill spila boltanum út og þú verður að hafa leikmenn sem eru ótrúlega góðir á boltann."

„Ef þú ert með hraða í kringum þá, þá held ég að þetta hjálpi Chelsea. Ég held að Stones verði frábær kaup og hann verður að spila í þriggja manna vörn."

Athugasemdir
banner
banner