Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 29. júlí 2020 19:05
Ívan Guðjón Baldursson
Úkraína: Kolos vann úrslitaleik um Evrópusæti
Mynd: Kolos Kovalivka
Kolos Kovalivka 1 - 0 Mariupol
1-0 Denys Antyukh ('95)

Árni Vilhjálmsson var ónotaður varamaður er Kolos Kovalivka tryggði sér sæti í undankeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.

Kolos lagði Mariupol að velli í úrslitaleik umspilsins þökk sé marki frá Denys Antyukh í framlengingu.

Antyukh hefur farið hamförum í umspilinu og skoraði tvennu í 4-1 sigri í undanúrslitaleiknum.

Óljóst er hvort Árni fái nýjan samning í Úkraínu eða hvort hann rói á önnur mið.

Árni kom síðast við sögu gegn Dynamo Kiev fyrir tíu dögum. Hann kom inn af bekknum og skoraði úr vítaspyrnu í 2-0 sigri.
Athugasemdir
banner
banner