Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. september 2019 16:15
Magnús Már Einarsson
McAuley leggur skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
Norður-írski varnarmaðurinn Gareth McAuley hefur lagt skóna á hilluna 39 ára að aldri.

McAuley spilaði 203 leiki með WBA í ensku úrvalsdeildinni en hann var hjá félaginu frá 2011 til 2018.

Á síðasta tímabili spilaði McAuley síðan með Rangers í Skotlandi.

McAuley spilaði á ferli sínum 80 landsleiki með Norður-Írlandi en hann skoraði meðal annars á EM 2016.

McAuley spilaði einnig með Ipswich og Leicester á löngum ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner