Chelsea verðmetur Jackson á 100 milljónir punda - Rashford efstur á óskalista Barcelona - Sancho til Juventus?
   fös 13. september 2019 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England um helgina - Heldur sigurganga Liverpool áfram?
Enska boltinn rúllar aftur af stað um helgina eftir landsleikjahlé, Liverpool er á toppnum eftir fyrstu fjórar umferðirnar og þeir eiga fyrsta leik helgarinnar.

Newcastle mætir Liverpool í hádegisleiknum á morgun, flautað verður til leiks á Anfield klukkan 11:30.

Frank Lampard fer með lærisveina sína í Chelsea í heimsókn til Wolves klukkan 14:00, á sama tíma fara fram fjórir leikir. Tottenham fær Crystal Palace í heimsókn í Lundúnarslag, Sheffield United tekur á móti Southampton og Brighton mætir Burnley.

Á Old Trafford fá heimamenn í Manchester United Leicester City í heimsókn. Gestirnir í Leicester eru í 3. sæti með átta stig, stigasöfnun Rauðu djöflanna hefur ekki gengið eins vel en þeir eru í 8. sæti með fimm stig.

Lokaleikur morgundagsins er viðureign Norwich og Englandsmeistara Manchester City sem eru í 2. sæti tveimur stigum á eftir Liverpool. Flautað verður til leiks á Carrow Road klukkan 16:30.

Á sunnudaginn fara fram tveir leikir. Bournemouth fær Gylfa Þór og félaga í Everton í heimsókn klukkan 13:00. Watford sem réð nýjan stjóra í landsleikjahlénu fær Arsenal í heimsókn, Quique Sánchez Flores er mættur aftur til Watford. Arsenal er með sjö stig í 5. sæti, viðureign liðanna hefst klukkan 15:30.

Lokaleikur 5. umferðar er á mánudagskvöld, Aston Villa og West Ham mætast þá á Villa Park í Birmingham.

Laugardagur 14. september.
11:30 Liverpool - Newcastle (Síminn Sport)
14:00 Wolves - Chelsea
14:00 Tottenham - Crystal Palace
14:00 Sheffield Utd - Southampton
14:00 Man Utd - Leicester (Síminn Sport)
14:00 Brighton - Burnley
16:30 Norwich - Man City (Síminn Sport)

Sunnudagur 15. september.
13:00 Bournemouth - Everton (Síminn Sport)
15:30 Watford - Arsenal (Síminn Sport)

Mánudagur 16. september.
19:00 Aston Villa - West Ham (Síminn Sport)



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Burnley 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leeds 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Sunderland 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Leicester 38 6 7 25 33 80 -47 25
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Ipswich Town 38 4 10 24 36 82 -46 22
20 Southampton 38 2 6 30 26 86 -60 12
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir